Jaháá..

.. 

Útlönd!

 

Víhhhjaaa!! EKKI NEMA 26 DAGAR!!

Er búin að vera að googla þessu pleisi; það er La Palma í kvöld, því það er óvenjulega dautt hérna í sundlauginni... og hef komist að því að það ERU HÁKARLAR ÞARNA!! Mamma mia!! En samt langar mig svo að prófa svona Scooba-diving!! Úff hvað það hlýtur að vera gaman!! Linkur hérna fyrir neðan um það fyrir my fellow travelers!!;);) ->

 

http://la-palma.costasur.com/en/buceo.html

 

Æhj..það er víst enginn bar þarna:S skrambinn...þar fór það... las um þetta hótel að það sé allt fullt af írskum körlum!! Hahahah.. ég ætla sko að læsa dyrunum takk!!!

Allavega, þá virðist þessi hópur alltaf vera að breytast... þrír búnir að beila frá byrjun,,, söss! En ég er sko ekekrt að fara að hætta við! Sei sei nei! Sitjið uppi með mig hvort sem þið viljið eður ei!;)

 

En það er annars bara gott að frétta, nema að ég er svolítið á eftir í fjarnáminu:S fékk samt 9,5 í báðum síðustu prófunum sem ég hef tekið:D það er nú gott! Næst  er það bara 10!¨

Það er ælupest að ganga í leikskólanum... var næstum ælt á mig í morgun!! Fóru tvö veik heim í dag.. vorkenni þessum litlu greyum! Svo var danskennsla!! Ég sem hélt að ég slyppi við þetta eftir grunnskóla! En nei nei.. þetta var allt í lagi.. allir krakkarnir alveg á fullu, og það var ekki laust við að maður svitnaði pínu á öllu þessu hoppi í 40 mínútur!!;) líkamsrækt dagsin; ekki veitir af!

Er búin að vera að vinna alveg helling í þessum mánuði:D það er fínt, þá fæ ég líka bara meira útborgað:D

En annars er það Húsafell í sumar, með Toggu-Tweety og Elsu Pelsu, og Líkinu líka;) haha nei djók, hún heitir Líeke! Fyndið... svo þetta verður stanslaust stuð og paartý;)

Er annars bara búin að vera að tapa mér yfir ákveðinni vefsíðu, sem heitir target.com! það er svo mikið að svölum fötum þarna á skít og kanil!!:D ahh.. langar alltaf í kreditkort þegar ég skoða hana!;) en mamma ætlar að redda þessu fljótlega;) vooona ég...

En farin að leggja kapal eða tala við bergmálið!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aðalheiður Kristjánsdóttir

æji greyið litlu börnin! Það fáa sem ég man af leikskóla fyrir utan það að hafa alltaf verið að loka þinn inn í skáp og svoleiðis skemmtileg heit, var einmitt þegar pabbi sótti mig á leikskólann með ælupest....einmitt sama dag þurftum við að fara í björgunarleiðangur því mamma hafði fest bílinn á leiðinni úr vinnunni....og svo man ég á hvaða video mynd ég horfði! ojjj hata svona daga!

En ég fann nú ekkert mikið síðri manneskju en mig til að fara með út;) þið eigið eftir að skemmta ykkur, og ég vona að hákarlarnir eigi ekki eftir að éta þig

Heyrumst síðar feller

Aðalheiður Kristjánsdóttir, 21.2.2008 kl. 23:33

2 identicon

já... ooog ekki gleyma  henni Maríu Maðalenu ;) ---- það verður skoooo stuð á okkur:D:D:D

eeen heyri i þér sem fyrst esskan ooog ég sé þig nú í páskafríinu, áður og eftir að þú ferð út! ;)

ASLE (IP-tala skráð) 26.2.2008 kl. 17:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband